Íslenska

Bloggið

Meniga leitar að hugbúnaðarsérfræðingum

30 Jan 2012

Vegna stóraukinna umsvifa erlendis leitar Meniga eftir öflugum liðsmönnum til að styrkja hugbúnaðarþróun fyrirtækisins.

Við viljum ráða sérfræðinga með fjölbreyttan bakgrunn, reynslu og þekkingu til að taka þátt í að hanna og þróa með okkur vef- og farsímalausnir á heimsmælikvarða. Lausnir okkar byggja að miklu leyti á úrvinnslu og greiningu gagna og eru hannaðar til að skalast vel og höndla mikið gagnamagn. Þær eru þróaðar þannig að auðvelt sé að aðlaga þær að tækniumhverfi ólíkra banka. Markmið okkar er að hjálpa bönkum að auka ánægju viðskiptavina sinna með notendavænum og „snjöllum“ hugbúnaði.

Meðal verkefna er forritun nýjunga, forritun farsíma- og spjaldtölvulausna, hönnun gagnagrunna og vöruhúsa, útfærsla á gervigreind og aðlögun að netbönkum erlendra banka.

Við leitum meðal annars að

  • hugbúnaðarsérfræðingum 
  • viðmóstssérfræðingum
  • prófana- og gæðastjóra og 
  • kerfisstjóra. 

Áhugasamir sendi umsókn á netfangið atvinna@meniga.is. Nánari upplýsingar um störfin má finna á vef Meniga.

Við lofum:

 

  • Spennandi og krefjandi hugbúnaðarverkefnum
  • Tækifæri til að læra, vaxa og þroskast í starfi
  • Fjölskylduvænu og góðu vinnuumhverfi
  • Skemmtilegum vinnustað
  • Góðum launum og kaupréttum

 

Meniga hlýtur verðlaun fyrir bestu bankalausnina

27 Sep 2011

Meniga hlaut verðlaun fyrir bestu bankalausn ársins þegar „Banking IT-Innovation 2011“ verðlaunin voru afhent í fyrsta skipti á Business Engineering Forum í Austurríki síðastliðinn fimmtudag. Verðlaunin voru veitt fyrir þá tæknilausn sem þótti skara fram úr og skila viðskiptavinum banka- og fjármálafyrirtækja mestum ávinningi. Dr. Hansjörg Leichsenring frá Meniga og Bruno Richle, framkvæmdastjóri Crealogix sem er samstarfsfyrirtæki Meniga í Sviss, veittu verðlaununum viðtöku.

„Við erum afar stolt af þessari miklu viðurkenningu. Þetta hefur verið frábært ár fyrir okkur en fyrr á árinu hlaut Meniga verðlaun fyrir bestu tæknilausnina á hinni virtu Finovate ráðstefnu,“ sagði Dr. Hansjörg Leichsenring, umboðsmaður Meniga í Þýskalandi, Austurríki og Sviss, þegar hann tók við verðlaununum.

Meniga hefur vakið mikla athygli í Evrópu og víðar fyrir framsækna og notendavæna heimilisfjármálalausn. Meniga lausnina er auðvelt að aðlaga að netbönkum ólíkra banka og veita viðskiptavinum þeirra þannig aðgang að margvíslegri virkni sem er sérhönnuð til að virkja þá betur við stjórn heimilisfjármálanna og gera fjármálin skemmtilegri og áhugaverðari.

Helstu sérfræðingar á sviði netbankaviðskipta eru sammála um að innleiðing heimilisfjármálalausna á borð við Meniga verði mikilvægur þáttur í stefnumörkun viðskiptabanka á næstu árum og geti skilað þeim umtalsverðum tekjum.

Um verðlaunin:

„Banking IT-Innovation “ verðlaunin eru samstarfsverkefni háskólanna í St. Gallen, Leipzig og Zürich og var dómnefnd skipuð sex óháðum fulltrúum frá fimm rannsóknarstofnunum. Við mat dómnefndar á verðlaunalausn Meniga var tekið tillit til nýnæmis, ávinnings viðskiptavina og þýðingu fyrir hinn þýskumælandi bankamarkað.

Ársskýrsla

3 Apr 2011

Nú er hægt að sjá hvernig árið í heild sinni leit út en þar tökum við saman tekjur og útgjöld yfir árið og birtum í einu heilstæðu yfirliti. Til að skoða ársskýrsluna ferð þú í skýrslur og velur ársskýrslu.

Flokkað sem: Nýjungar í Meniga

Spurningaleikur um þín fjármál

3 Apr 2011

Mánaðarlega munum við bjóða þér að taka þátt í nýjum spurningaleik eða fjármálaprófi þar sem þú svarar 5 léttum spurningum um fjármál þín. Fyrstu spurningaleikirnir snúast um bifreiðaútgjöld og útgjöld vegna skemmtana

Flokkað sem: Nýjungar í Meniga

Innsýn: Nýr og betri samanburður

3 Apr 2011

Samanburðurinn í Meniga hefur fengið gagngera yfirhalningu og hlotið nafnið Innsýn. Með þessum breytingum vonumst við til að þú getir öðlast enn betri innsýn í hvernig útgjöldum þínum er háttað í samanburði við samfélagið. 

Sérstaklega viljum við nefna innsýn í matarinnkaup þar sem þú getur greint hvar þú verslar oftast miðað við aðra og hvernig þú gætir mögulega hagað innkaupunum til að nýta peningana enn betur.

Flokkað sem: Nýjungar í Meniga

Meniga tilnefnt til Nexpo verðlaunanna í 3 flokkum

22 Feb 2011

Meniga er tilnefnt til Nexpo verðlaunanna í þremur flokkum:

Dómnefnd skipuð fagfólki í vefmálum hefur nú valið þá aðila sem komast í úrslit í þeim 9 flokkum sem keppt er um. Einnig verða sérstök heiðursverðlaun veitt fyrir frábært framlag til vefmála á Íslandi.

Nexpo vefverðlaunin eru ný verðlaun sem verða veitt í fyrsta skipti á sýningunni Netið Expo 2011 sem fram fer í Vetrargarðinum 11.-13. mars.

Hér má finna allar tilnefningarnar og kjósa.

Flokkað sem: Viðurkenningar

Meniga.is valinn besti íslenski vefurinn

7 Feb 2011

Besti-vefurinn-2010
Meniga.is var valinn besti íslenski vefurinn á Íslensku vefverðlaunum sem Samtök vefiðnaðarins stóðu fyrir síðastliðinn föstudag. Simon Collison afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn sem haldin var í Tjarnarbíói. Alls bárust yfir 100 tilnefningar til verðlaunanna að þessu sinni en þetta er í tíunda skipti sem Íslensku vefverðlaunin eru haldin.

Í umsögn dómnefndar um Meniga.is segir meða annars: „Besti vefurinn að mati dómnefndar er ekki bara til fyrirmyndar þegar kemur að framsetningu og notendavænni miðlun upplýsinga, heldur líka þegar kemur að hugviti og annari fræðslu sem vefnum tengist. Fyrirtækið hefur fylgst vel með þróun vefja í sínum bransa og hefur nýtt sér góð fordæmi í uppbyggingu síðunnar. Það er mikið í húfi þar sem vefurinn er mikilvægt sölutól.“

Íslensku vefverðlaunin eru uppskeruhátíð vefiðnaðarins, haldin með það að markmiði að efla hann, verðlauna bestu vefina og hvetja þá sem starfa á þessum vettvangi til dáða.

Sjá nánar: http://svef.is/frett/item3794/Úrslit_í_Íslensku_Vefverðlaununum/

Flokkað sem: Viðurkenningar

Meniga hlýtur verðlaun á Finovate

2 Feb 2011

Finovate_feu_2011_bestofshow
Meniga hlaut verðlaun fyrir bestu tæknilausnina á ráðstefnunni Finovate Europe 2011 sem haldin var í London þriðjudaginn 1. febrúar. Á ráðstefnunni kynntu 35 fyrirtæki tækninýjungar í banka- og fjármálaþjónustu fyrir rúmlega 400 þátttakendum frá um 40 löndum. Finovate, sem er ein þekktasta og virtasta ráðstefnan um tækninýjungar í fjármálageiranum í Bandaríkjunum, var í ár haldin í fyrsta skipti í Evrópu.
 
Í verðlaunakynningunni sagði Georg Lúðvíksson, framkvæmdastjóri Meniga, frá framsæknustu nýjungunum í heimilisfjármálahugbúnaði Meniga en þeim er ætlað að höfða til mun stærri hóps en áður hefur nýtt sér slíkar lausnir og þar með auka umtalsvert ávinning þeirra fjármálastofnana sem bjóða viðskiptavinum sínum upp á heimilisfjármálahugbúnað Meniga.
 
"Við erum mjög stolt af því að hafa hlotnast þessi heiður frá sérfræðingum Finovate ráðstefnunnar ekki síst í ljósi þess að okkar helstu keppinautar kynntu einnig sínar lausnir á ráðstefnunni," segir Georg. "Þessi verðlaun staðfesta það að heimilisfjármálalausn Meniga er í fremstu röð í heiminum og við finnum mikinn hljómgrunn fyrir því sem við höfum lagt áherslu á frá byrjun að þróa lausn sem höfðar til sem flestra. Þær nýjungar sem við kynntum á Finovate miða allar að því að hvetja fólk til dáða, vekja forvitni þess, t.d. með gagnlegum samanburði við aðra og tengingu við samfélagsmiðla og virkja það betur við stjórn heimilisfjármálanna. Til þess nýtum við m.a. hugmyndir úr leikjafræði. Við hlökkum til að kynna þessar nýjungar fyrir íslenskum notendum Meniga og erum sannfærð um að þeir munu taka þeim fagnandi."

Flokkað sem: Viðurkenningar

Meniga í úrslitum til Íslensku vefverðlaunanna í 3 flokkum

31 Jan 2011

Vefir Meniga hafa verið valdir í úrslit til Íslensku vefverðlaunanna 2010 í þremur flokkum en verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í Tjarnarbíói 4. febrúar næstkomandi.
 
Sölu- og markaðsvefur Meniga, www.meniga.com, er tilnefndur til Íslensku vefverðlaunanna í flokknum "Besti sölu- og kynningarvefur fyrirtækis með færri en 50 starfsmenn." Heimilisfjármálavefur Meniga, www.meniga.is, er tilnefndur í flokknum "Besti þjónustu- og upplýsingavefurinn." Og loks er farsímaútgáfa heimilisfjármálavefsins Meniga, m.meniga.is, tilnefndur í flokknum "Besti hand-smátækja vefurinn."
 
Meniga er afar stolt af að komast í úrslit til þessara eftirsóttu verðlauna en úrlslitavefirnir þrír voru alfarið þróaðir af starfsfólki Meniga. Hönnun sölu- og markaðsvefs Meniga og heimilisfjármálavefs Meniga var unnin í samstarfi við Skapalón.

Dómnefnd Íslensku vefverðlaunanna er skipuð fagfólki í vefmálum.

Sjá nánar á vef Samtaka vefiðnaðarins.

Flokkað sem: Viðurkenningar

Strákarnir okkar draga vagninn

21 Jan 2011

Strákunum okkar í handboltalandsliðinu hefur fram til þessa gengið allt í haginn á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð.

Á sama tíma hafa eldsneytissjálfsafgreiðslustöðvarnar (þetta er ansi langt orð!) verið duglegar að tengja eldsneytisverð sitt við þann markatölumun sem landsliðið okkar vinnur leiki sína með. Þannig hefur hvert mark sem landsliðið skorar umfram andstæðingana skilað sér í krónu afslætti á lítrann.

Já, ef bíleigendur hafa einhvern tímann haft ástæðu til að styðja landsliðið, rífa sig upp úr sófanum og fagna í hvert sinn sem klístraða tuðran þenur netmöskva andstæðinganna er það vitanlega núna!

En hvað hefur þetta með Meniga að gera gætu sumir spurt?

Jú mikið því Meniga samfélagið endurspeglar neysluvenjur 6% heimila í landinu og því þótti okkur athyglisvert að skoða hvernig neyslumynstrið hefur verið á eldsneytismarkaðnum í þessari gósentíð.

Það gerðum við með því að skoða hlutfall milli viðskipta á sjálfsafgreiðslustöðvunum þremur (Atlantsolíu, Orkunni og ÓB) annars vegar og afgreiðslustöðvum sem bjóða upp á fulla þjónustu hins vegar. Við tókum þannig saman allar færslur (ópersónugreinanlegar að sjálfsögðu og í fullu samræmi við öryggis- og persónuverndarstefnu Meniga) sem flokkaðar hafa verið sem eldsneyti þriðjudaginn 18. janúar s.l. á verðbilinu 4.000 - 16.000 kr. Verðbilið völdum við til að önnur innkaup en eldsneyti á afgreiðslustöðvum með fulla þjónustu lituðu síður niðurstöðurnar.

Niðurstöðurnar koma í sjálfu sér ekki á óvart en bera neytendum fagurt merki því hlutdeild  sjálfsafgreiðslustöðvanna í kaupum á eldsneyti jókst um 17 prósentustig þriðjudaginn 18. janúar þegar 14 kr. afsláttur var veittur á lítrann. Samkvæmt okkar tölum eru sjálfsafgreiðslustöðvarnar með 61% markaðshlutdeild á þriðjudögum í eldsneyti að jafnaði en þennan dag er hlutdeildin 78% sem er umtalsverð aukning. Þetta fundu sjálfsagt margir á eigin skinni þegar beðið var eftir því að komast að á stöðvunum sjálfum. Það má glöggva sig enn betur á þessari breytingu á meðfylgjandi mynd.

Unknownname

Við getum því sagt að neytendur séu almennt reiðubúnir að stökkva til þegar góður afsláttur af eldsneyti er annars vegar. Áfram neytendur!

Aðeins að blessaðri verðtryggingunni.

Fram hefur komið í fjölmiðlum að verðlækkun um 14 krónur þriðjudaginn 18. janúar skilaði sér í 9% verðlækkun með fullum afslætti af listaverði.

Segjum sem svo að að verðlagseftirlitsmenn Hagstofunnar hafi verið á ferðinni þann dag til að mæla verð. Ef við gefum okkur síðan að mælingin hafi í raun sýnt 9% verðlækkun frá miðjum desember s.l. myndi það þýða 0,5% lækkun á vísitölunni (til verðtryggingar) í janúar, að öllu öðru óbreyttu, því eldsneyti er 5,68% af vísitölunni.

Ef þetta gengi eftir myndi til dæmis höfuðstóll 20 millljón króna verðtryggðs húsnæðisláns lækka um 100 þúsund krónur sem væru jákvæði tíðindi í skammdeginu. Þessi lækkun myndi að öllu jöfnu ganga til baka í næsta mánuði en þetta myndi þó þýða lægri vaxtagreiðslur þennan mánuðinn (416 kr. ef um 5% ársvexti er að ræða og mánaðarlegar greiðslur af höfuðstól).

Strákarnar okkar eru því ekki einungis að rétta bak hnýpinnar þjóðar og blása lífi í veiklað þjóðarstolt heldur geta þeir hugsanlega haft bein áhrif á fjárhagslega stöðu þjóðarinnar.

Er því einhver furða að Gummi landsliðsþjálfari sé alltaf að tönglast á markatölunni?

Áfram Ísland, Helgi Ben-sín

Flokkað sem: Efnahagsmál