Íslenska

Bloggið

Nýjungar í Meniga

14 Jan 2011

 

 

FRÉTTABRÉF MENIGA FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2011

Undanfarið höfum við unnið hörðum höndum að ýmsum endurbótum sem einfalda og flýta fyrir notkun á Meniga. Einnig hafa ýmsar frábærar nýjungar, eins og sjá má að neðan, litið dagsins ljós. 

Við tökum öllum ábendingum fagnandi og hvetjum ykkur að láta í ykkur heyra.

Meniga í farsímann

Nú getur þú fylgst með stöðu mála, skráð nýjar peningafærslur og fengið útgjaldayfirlit á ferðinni.

Notendur með iPhone eða Android geta sótt Meniga forritið (app) og sett upp á símanum sínum. Von er á forriti fyrir aðra snjallsíma eins og Nokia og Blackberry á næstu dögum. Einnig er hægt að nálgast farsímaútgáfu af Meniga.is á slóðinni m.meniga.is.

Til að sækja Meniga app-ið er einfaldast að opna vafrann í símanum sínum og fara inn á slóðina m.meniga.is. Síðan skynjar hvaða útgáfu af síma þú ert með og bíður þér að hlaða niður app fyrir símann þinn. Einnig getur þú farið á Apple App-Store og leitað að Meniga eða farið á Android Market á símanum þínum og gert það sama. 

Einfaldara bókhald

Bókhaldið hefur verið einfaldað að því leyti að núna birtum við ekki tóma flokka sem hvorki innihalda færslur né áætlun. Þú getur hinsvegar valið að birta alla flokka ef þú vilt stilla áætlun í flokkum sem eru faldir. 
Horfa á myndskeið

Aðgangur fyrir maka

Fyrir pör með sameiginlegan fjárhag í Meniga getur einnig verið hentugt að vera með aðskilinn aðgang. Gögnin ykkar eru sameiginleg en notendur geta verið með mismunandi stillingar í “Augun á útgjöldunum” og tilkynningum. 
Horfa á myndskeið

Reglur

Reglur sem framkvæma sjálfvirkar aðgerðir er viðbót sem margir hafa beðið um. Regla getur t.d. fært launagreiðslu fram yfir mánaðarmót og flokkað lægri upphæðir á bensínstöðvum sem sjoppu eða skyndibita.                         
Horfa á myndskeið

Faldir flokkar birtast

Flokkar sem Meniga faldi í byrjun birtast nú sjálfkrafa þegar við á en þeir hafa farið framhjá sumum notendum. Þú getur hinsvegar áfram falið þá flokka sem þú vilt ekki hafa sýnilega í kerfinu.

Flokkað sem: Nýjungar í Meniga