Meniga leitar að hugbúnaðarsérfræðingum
Vegna stóraukinna umsvifa erlendis leitar Meniga eftir öflugum liðsmönnum til að styrkja hugbúnaðarþróun fyrirtækisins.
Við viljum ráða sérfræðinga með fjölbreyttan bakgrunn, reynslu og þekkingu til að taka þátt í að hanna og þróa með okkur vef- og farsímalausnir á heimsmælikvarða. Lausnir okkar byggja að miklu leyti á úrvinnslu og greiningu gagna og eru hannaðar til að skalast vel og höndla mikið gagnamagn. Þær eru þróaðar þannig að auðvelt sé að aðlaga þær að tækniumhverfi ólíkra banka. Markmið okkar er að hjálpa bönkum að auka ánægju viðskiptavina sinna með notendavænum og „snjöllum“ hugbúnaði.
Meðal verkefna er forritun nýjunga, forritun farsíma- og spjaldtölvulausna, hönnun gagnagrunna og vöruhúsa, útfærsla á gervigreind og aðlögun að netbönkum erlendra banka.
Við leitum meðal annars að
- hugbúnaðarsérfræðingum
- viðmóstssérfræðingum
- prófana- og gæðastjóra og
- kerfisstjóra.
Áhugasamir sendi umsókn á netfangið atvinna@meniga.is. Nánari upplýsingar um störfin má finna á vef Meniga.
Við lofum:
- Spennandi og krefjandi hugbúnaðarverkefnum
- Tækifæri til að læra, vaxa og þroskast í starfi
- Fjölskylduvænu og góðu vinnuumhverfi
- Skemmtilegum vinnustað
- Góðum launum og kaupréttum

