Meniga hlýtur verðlaun fyrir bestu bankalausnina
Meniga hlaut verðlaun fyrir bestu bankalausn ársins þegar „Banking IT-Innovation 2011“ verðlaunin voru afhent í fyrsta skipti á Business Engineering Forum í Austurríki síðastliðinn fimmtudag. Verðlaunin voru veitt fyrir þá tæknilausn sem þótti skara fram úr og skila viðskiptavinum banka- og fjármálafyrirtækja mestum ávinningi. Dr. Hansjörg Leichsenring frá Meniga og Bruno Richle, framkvæmdastjóri Crealogix sem er samstarfsfyrirtæki Meniga í Sviss, veittu verðlaununum viðtöku.
„Við erum afar stolt af þessari miklu viðurkenningu. Þetta hefur verið frábært ár fyrir okkur en fyrr á árinu hlaut Meniga verðlaun fyrir bestu tæknilausnina á hinni virtu Finovate ráðstefnu,“ sagði Dr. Hansjörg Leichsenring, umboðsmaður Meniga í Þýskalandi, Austurríki og Sviss, þegar hann tók við verðlaununum.
Meniga hefur vakið mikla athygli í Evrópu og víðar fyrir framsækna og notendavæna heimilisfjármálalausn. Meniga lausnina er auðvelt að aðlaga að netbönkum ólíkra banka og veita viðskiptavinum þeirra þannig aðgang að margvíslegri virkni sem er sérhönnuð til að virkja þá betur við stjórn heimilisfjármálanna og gera fjármálin skemmtilegri og áhugaverðari.
Helstu sérfræðingar á sviði netbankaviðskipta eru sammála um að innleiðing heimilisfjármálalausna á borð við Meniga verði mikilvægur þáttur í stefnumörkun viðskiptabanka á næstu árum og geti skilað þeim umtalsverðum tekjum.
Um verðlaunin:
„Banking IT-Innovation “ verðlaunin eru samstarfsverkefni háskólanna í St. Gallen, Leipzig og Zürich og var dómnefnd skipuð sex óháðum fulltrúum frá fimm rannsóknarstofnunum. Við mat dómnefndar á verðlaunalausn Meniga var tekið tillit til nýnæmis, ávinnings viðskiptavina og þýðingu fyrir hinn þýskumælandi bankamarkað.

