Innsýn: Nýr og betri samanburður

Samanburðurinn í Meniga hefur fengið gagngera yfirhalningu og hlotið nafnið Innsýn. Með þessum breytingum vonumst við til að þú getir öðlast enn betri innsýn í hvernig útgjöldum þínum er háttað í samanburði við samfélagið.
Sérstaklega viljum við nefna innsýn í matarinnkaup þar sem þú getur greint hvar þú verslar oftast miðað við aðra og hvernig þú gætir mögulega hagað innkaupunum til að nýta peningana enn betur.

