Meniga.is valinn besti íslenski vefurinn
Meniga.is var valinn besti íslenski vefurinn á Íslensku vefverðlaunum sem Samtök vefiðnaðarins stóðu fyrir síðastliðinn föstudag. Simon Collison afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn sem haldin var í Tjarnarbíói. Alls bárust yfir 100 tilnefningar til verðlaunanna að þessu sinni en þetta er í tíunda skipti sem Íslensku vefverðlaunin eru haldin.
Í umsögn dómnefndar um Meniga.is segir meða annars: „Besti vefurinn að mati dómnefndar er ekki bara til fyrirmyndar þegar kemur að framsetningu og notendavænni miðlun upplýsinga, heldur líka þegar kemur að hugviti og annari fræðslu sem vefnum tengist. Fyrirtækið hefur fylgst vel með þróun vefja í sínum bransa og hefur nýtt sér góð fordæmi í uppbyggingu síðunnar. Það er mikið í húfi þar sem vefurinn er mikilvægt sölutól.“
Íslensku vefverðlaunin eru uppskeruhátíð vefiðnaðarins, haldin með það að markmiði að efla hann, verðlauna bestu vefina og hvetja þá sem starfa á þessum vettvangi til dáða.
Sjá nánar: http://svef.is/frett/item3794/Úrslit_í_Íslensku_Vefverðlaununum/

