Íslenska

Bloggið

Nýir leitarmöguleikar í Meniga

21 Jan 2011

Glöggir notendur hafa kannski tekið eftir því að nú er búið að breyta og bæta færsluleitina í Meniga.

Frjálsa textaleitin efst í færslulistanum er enn á sínum stað.
Search
Þar getum við leitað eftir heilum orðum eða jafnvel hluta úr orðum. Textabrotið "trygg" myndi tildæmis skila öllum færslum frá Tryggingastofnun, Sjúkratryggingum Íslands, Vátryggingum og svo framvegis en einnig öllum millifærslum til Tryggva og svo má lengi telja.

Ef við hökum við "Aðeins merktar  " þá fáum við upp allar færslur sem hafa verið flaggaðar en flaggaðar færslur eru þær færslur sem við eða kerfið höfum ákveðið að við þurfum að kíkja nánar á. Þegar hakað er við "Aðeins merktar  " þá er hægt að leita innan þeirra með frjálsu textaleitinni.

Ef við smellum á "Ítarleg leit" fáum við upp þessa valmynd 
Itarlegleit
Hér getum við þrengt þær leitarniðurstöður sem við erum með niður á ákveðið tímabil eða ákveðna upphæð eða bæði eftir því sem við á.

Ennfremur getum við þrengt leitina niður á ákveðna flokka með því að nota flokkalistann sem við finnum vinstra megin við færslulistann og lítur svona út
Flokkalisti
Þegar við hökum við tiltekinn flokk eða undirflokk þá birtast bara færslur úr þeim flokkum í færslulistanum.

Leit í flokkum er nú einfaldari og þægilegri í notkun en hún var áður og við vonum að hún komi notendum okkar að góðum notum.

 

Flokkað sem: Nýjungar í Meniga