Nýjar tilkynningar með tölvupósti
Hafið þið prófað að skoða nýju "tilkynninga" möguleikana í Meniga?
Það er ekki langt síðan að við bættum við nýjum möguleikum á tilkynningum frá Meniga, nú er m.a. hægt að fá tilkynningu um óvenjulegar færslur og þegar við förum yfir áætlun í ákveðnum flokki.
Til að skoða hvaða tilkynningar Meniga býður upp á þarf að fara í Stillingar - Tilkynningar
Þá opnast þessi gluggi þar sem við getum stillt hvaða tilkynningar við viljum fá sendar:
Flestar stillingarnar útskýra sig sjálfar en förum stuttlega yfir nýju atriðin.
- "Auka netfang" - þar getum við sett inn netfang hjá t.d. maka svo hann fái líka tilkynningar frá Meniga.
- Útgjöld - nú getum við fengið tilkynningu um öll útgjöld yfir ákveðinni upphæð
- Innborganir - eins og með útgjöldin þá getum við fengið tilkynningu um allar innborganir yfir ákveðinni upphæð
- Bankakostnaður og þjónustugjöld - við getum fengið tilkynningar um kostnað og þjónustugjöld frá bankanum.
- Óvenjuleg útgjöld - Meniga getur sent okkur tilkynningar sem teljast óvenjulegar miðað við þau útgjöld sem við höfum átt í fortíðinni.
- Yfir áætlun - ef við förum yfir áætlun í einhverjum flokknum getur Meniga látið okkur vita eða...
- Ef útgjöld í tilteknum flokki ná ákveðinni % af heildaráætlun getur Meniga einnig látið okkur vita.
Það er gott ráð að nota sjálfvirku tilkynningarnar til að koma böndum á þá útgjaldaflokka sem við höfum átt í vandræðum með. Ef við notum sjálfvirku tilkynningarnar þá höfum við enga afsökun fyrir að fara fram úr áætlun.


