Meniga bloggið http://blog.meniga.is Most recent posts at Meniga bloggið posterous.com Sun, 29 Jan 2012 23:52:00 -0800 Meniga leitar að hugbúnaðarsérfræðingum http://blog.meniga.is/meniga-leitar-ad-hugbunadarserfraedingum http://blog.meniga.is/meniga-leitar-ad-hugbunadarserfraedingum

Vegna stóraukinna umsvifa erlendis leitar Meniga eftir öflugum liðsmönnum til að styrkja hugbúnaðarþróun fyrirtækisins.

Við viljum ráða sérfræðinga með fjölbreyttan bakgrunn, reynslu og þekkingu til að taka þátt í að hanna og þróa með okkur vef- og farsímalausnir á heimsmælikvarða. Lausnir okkar byggja að miklu leyti á úrvinnslu og greiningu gagna og eru hannaðar til að skalast vel og höndla mikið gagnamagn. Þær eru þróaðar þannig að auðvelt sé að aðlaga þær að tækniumhverfi ólíkra banka. Markmið okkar er að hjálpa bönkum að auka ánægju viðskiptavina sinna með notendavænum og „snjöllum“ hugbúnaði.

Meðal verkefna er forritun nýjunga, forritun farsíma- og spjaldtölvulausna, hönnun gagnagrunna og vöruhúsa, útfærsla á gervigreind og aðlögun að netbönkum erlendra banka.

Við leitum meðal annars að

  • hugbúnaðarsérfræðingum 
  • viðmóstssérfræðingum
  • prófana- og gæðastjóra og 
  • kerfisstjóra. 

Áhugasamir sendi umsókn á netfangið atvinna@meniga.is. Nánari upplýsingar um störfin má finna á vef Meniga.

Við lofum:

 

  • Spennandi og krefjandi hugbúnaðarverkefnum
  • Tækifæri til að læra, vaxa og þroskast í starfi
  • Fjölskylduvænu og góðu vinnuumhverfi
  • Skemmtilegum vinnustað
  • Góðum launum og kaupréttum

 

Permalink | Leave a comment  »

]]>
http://files.posterous.com/user_profile_pics/726296/meniga_facebook.jpg http://posterous.com/users/4xgd9DtqRod3 Meniga Meniga Meniga
Tue, 27 Sep 2011 01:47:00 -0700 Meniga hlýtur verðlaun fyrir bestu bankalausnina http://blog.meniga.is/meniga-hlytur-verdlaun-fyrir-bestu-bankalausn http://blog.meniga.is/meniga-hlytur-verdlaun-fyrir-bestu-bankalausn

Meniga hlaut verðlaun fyrir bestu bankalausn ársins þegar „Banking IT-Innovation 2011“ verðlaunin voru afhent í fyrsta skipti á Business Engineering Forum í Austurríki síðastliðinn fimmtudag. Verðlaunin voru veitt fyrir þá tæknilausn sem þótti skara fram úr og skila viðskiptavinum banka- og fjármálafyrirtækja mestum ávinningi. Dr. Hansjörg Leichsenring frá Meniga og Bruno Richle, framkvæmdastjóri Crealogix sem er samstarfsfyrirtæki Meniga í Sviss, veittu verðlaununum viðtöku.

„Við erum afar stolt af þessari miklu viðurkenningu. Þetta hefur verið frábært ár fyrir okkur en fyrr á árinu hlaut Meniga verðlaun fyrir bestu tæknilausnina á hinni virtu Finovate ráðstefnu,“ sagði Dr. Hansjörg Leichsenring, umboðsmaður Meniga í Þýskalandi, Austurríki og Sviss, þegar hann tók við verðlaununum.

Meniga hefur vakið mikla athygli í Evrópu og víðar fyrir framsækna og notendavæna heimilisfjármálalausn. Meniga lausnina er auðvelt að aðlaga að netbönkum ólíkra banka og veita viðskiptavinum þeirra þannig aðgang að margvíslegri virkni sem er sérhönnuð til að virkja þá betur við stjórn heimilisfjármálanna og gera fjármálin skemmtilegri og áhugaverðari.

Helstu sérfræðingar á sviði netbankaviðskipta eru sammála um að innleiðing heimilisfjármálalausna á borð við Meniga verði mikilvægur þáttur í stefnumörkun viðskiptabanka á næstu árum og geti skilað þeim umtalsverðum tekjum.

Um verðlaunin:

„Banking IT-Innovation “ verðlaunin eru samstarfsverkefni háskólanna í St. Gallen, Leipzig og Zürich og var dómnefnd skipuð sex óháðum fulltrúum frá fimm rannsóknarstofnunum. Við mat dómnefndar á verðlaunalausn Meniga var tekið tillit til nýnæmis, ávinnings viðskiptavina og þýðingu fyrir hinn þýskumælandi bankamarkað.

Permalink | Leave a comment  »

]]>
http://files.posterous.com/user_profile_pics/726296/meniga_facebook.jpg http://posterous.com/users/4xgd9DtqRod3 Meniga Meniga Meniga
Sun, 03 Apr 2011 10:46:00 -0700 Ársskýrsla http://blog.meniga.is/arsskyrsla http://blog.meniga.is/arsskyrsla

Nú er hægt að sjá hvernig árið í heild sinni leit út en þar tökum við saman tekjur og útgjöld yfir árið og birtum í einu heilstæðu yfirliti. Til að skoða ársskýrsluna ferð þú í skýrslur og velur ársskýrslu.

Permalink | Leave a comment  »

]]>
http://files.posterous.com/user_profile_pics/726296/meniga_facebook.jpg http://posterous.com/users/4xgd9DtqRod3 Meniga Meniga Meniga
Sun, 03 Apr 2011 10:44:00 -0700 Spurningaleikur um þín fjármál http://blog.meniga.is/spurningaleikur-um-thin-fjarmal http://blog.meniga.is/spurningaleikur-um-thin-fjarmal

Mánaðarlega munum við bjóða þér að taka þátt í nýjum spurningaleik eða fjármálaprófi þar sem þú svarar 5 léttum spurningum um fjármál þín. Fyrstu spurningaleikirnir snúast um bifreiðaútgjöld og útgjöld vegna skemmtana

Permalink | Leave a comment  »

]]>
http://files.posterous.com/user_profile_pics/726296/meniga_facebook.jpg http://posterous.com/users/4xgd9DtqRod3 Meniga Meniga Meniga
Sun, 03 Apr 2011 10:41:00 -0700 Innsýn: Nýr og betri samanburður http://blog.meniga.is/innsyn-nyr-og-betri-samanburdur http://blog.meniga.is/innsyn-nyr-og-betri-samanburdur

Samanburðurinn í Meniga hefur fengið gagngera yfirhalningu og hlotið nafnið Innsýn. Með þessum breytingum vonumst við til að þú getir öðlast enn betri innsýn í hvernig útgjöldum þínum er háttað í samanburði við samfélagið. 

Sérstaklega viljum við nefna innsýn í matarinnkaup þar sem þú getur greint hvar þú verslar oftast miðað við aðra og hvernig þú gætir mögulega hagað innkaupunum til að nýta peningana enn betur.

Permalink | Leave a comment  »

]]>
http://files.posterous.com/user_profile_pics/726296/meniga_facebook.jpg http://posterous.com/users/4xgd9DtqRod3 Meniga Meniga Meniga
Mon, 21 Feb 2011 17:18:00 -0800 Meniga tilnefnt til Nexpo verðlaunanna í 3 flokkum http://blog.meniga.is/meniga-tilnefnt-til-nexpo-verdlaunanna-i-3-fl http://blog.meniga.is/meniga-tilnefnt-til-nexpo-verdlaunanna-i-3-fl

Meniga er tilnefnt til Nexpo verðlaunanna í þremur flokkum:

Dómnefnd skipuð fagfólki í vefmálum hefur nú valið þá aðila sem komast í úrslit í þeim 9 flokkum sem keppt er um. Einnig verða sérstök heiðursverðlaun veitt fyrir frábært framlag til vefmála á Íslandi.

Nexpo vefverðlaunin eru ný verðlaun sem verða veitt í fyrsta skipti á sýningunni Netið Expo 2011 sem fram fer í Vetrargarðinum 11.-13. mars.

Hér má finna allar tilnefningarnar og kjósa.

Permalink | Leave a comment  »

]]>
http://files.posterous.com/user_profile_pics/726296/meniga_facebook.jpg http://posterous.com/users/4xgd9DtqRod3 Meniga Meniga Meniga
Sun, 06 Feb 2011 16:04:00 -0800 Meniga.is valinn besti íslenski vefurinn http://blog.meniga.is/meniga-valinn-besti-islenski-vefurinn http://blog.meniga.is/meniga-valinn-besti-islenski-vefurinn

Besti-vefurinn-2010
Meniga.is var valinn besti íslenski vefurinn á Íslensku vefverðlaunum sem Samtök vefiðnaðarins stóðu fyrir síðastliðinn föstudag. Simon Collison afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn sem haldin var í Tjarnarbíói. Alls bárust yfir 100 tilnefningar til verðlaunanna að þessu sinni en þetta er í tíunda skipti sem Íslensku vefverðlaunin eru haldin.

Í umsögn dómnefndar um Meniga.is segir meða annars: „Besti vefurinn að mati dómnefndar er ekki bara til fyrirmyndar þegar kemur að framsetningu og notendavænni miðlun upplýsinga, heldur líka þegar kemur að hugviti og annari fræðslu sem vefnum tengist. Fyrirtækið hefur fylgst vel með þróun vefja í sínum bransa og hefur nýtt sér góð fordæmi í uppbyggingu síðunnar. Það er mikið í húfi þar sem vefurinn er mikilvægt sölutól.“

Íslensku vefverðlaunin eru uppskeruhátíð vefiðnaðarins, haldin með það að markmiði að efla hann, verðlauna bestu vefina og hvetja þá sem starfa á þessum vettvangi til dáða.

Sjá nánar: http://svef.is/frett/item3794/Úrslit_í_Íslensku_Vefverðlaununum/

Permalink | Leave a comment  »

]]>
http://files.posterous.com/user_profile_pics/726296/meniga_facebook.jpg http://posterous.com/users/4xgd9DtqRod3 Meniga Meniga Meniga
Wed, 02 Feb 2011 05:15:00 -0800 Meniga hlýtur verðlaun á Finovate http://blog.meniga.is/meniga-hlytur-verdlaun-a-finovate http://blog.meniga.is/meniga-hlytur-verdlaun-a-finovate

Finovate_feu_2011_bestofshow
Meniga hlaut verðlaun fyrir bestu tæknilausnina á ráðstefnunni Finovate Europe 2011 sem haldin var í London þriðjudaginn 1. febrúar. Á ráðstefnunni kynntu 35 fyrirtæki tækninýjungar í banka- og fjármálaþjónustu fyrir rúmlega 400 þátttakendum frá um 40 löndum. Finovate, sem er ein þekktasta og virtasta ráðstefnan um tækninýjungar í fjármálageiranum í Bandaríkjunum, var í ár haldin í fyrsta skipti í Evrópu.
 
Í verðlaunakynningunni sagði Georg Lúðvíksson, framkvæmdastjóri Meniga, frá framsæknustu nýjungunum í heimilisfjármálahugbúnaði Meniga en þeim er ætlað að höfða til mun stærri hóps en áður hefur nýtt sér slíkar lausnir og þar með auka umtalsvert ávinning þeirra fjármálastofnana sem bjóða viðskiptavinum sínum upp á heimilisfjármálahugbúnað Meniga.
 
"Við erum mjög stolt af því að hafa hlotnast þessi heiður frá sérfræðingum Finovate ráðstefnunnar ekki síst í ljósi þess að okkar helstu keppinautar kynntu einnig sínar lausnir á ráðstefnunni," segir Georg. "Þessi verðlaun staðfesta það að heimilisfjármálalausn Meniga er í fremstu röð í heiminum og við finnum mikinn hljómgrunn fyrir því sem við höfum lagt áherslu á frá byrjun að þróa lausn sem höfðar til sem flestra. Þær nýjungar sem við kynntum á Finovate miða allar að því að hvetja fólk til dáða, vekja forvitni þess, t.d. með gagnlegum samanburði við aðra og tengingu við samfélagsmiðla og virkja það betur við stjórn heimilisfjármálanna. Til þess nýtum við m.a. hugmyndir úr leikjafræði. Við hlökkum til að kynna þessar nýjungar fyrir íslenskum notendum Meniga og erum sannfærð um að þeir munu taka þeim fagnandi."

Permalink | Leave a comment  »

]]>
http://files.posterous.com/user_profile_pics/726296/meniga_facebook.jpg http://posterous.com/users/4xgd9DtqRod3 Meniga Meniga Meniga
Sun, 30 Jan 2011 16:00:49 -0800 Meniga í úrslitum til Íslensku vefverðlaunanna í 3 flokkum http://blog.meniga.is/meniga-i-urslitum-til-islensku-vefverdlaunann http://blog.meniga.is/meniga-i-urslitum-til-islensku-vefverdlaunann

Vefir Meniga hafa verið valdir í úrslit til Íslensku vefverðlaunanna 2010 í þremur flokkum en verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í Tjarnarbíói 4. febrúar næstkomandi.
 
Sölu- og markaðsvefur Meniga, www.meniga.com, er tilnefndur til Íslensku vefverðlaunanna í flokknum "Besti sölu- og kynningarvefur fyrirtækis með færri en 50 starfsmenn." Heimilisfjármálavefur Meniga, www.meniga.is, er tilnefndur í flokknum "Besti þjónustu- og upplýsingavefurinn." Og loks er farsímaútgáfa heimilisfjármálavefsins Meniga, m.meniga.is, tilnefndur í flokknum "Besti hand-smátækja vefurinn."
 
Meniga er afar stolt af að komast í úrslit til þessara eftirsóttu verðlauna en úrlslitavefirnir þrír voru alfarið þróaðir af starfsfólki Meniga. Hönnun sölu- og markaðsvefs Meniga og heimilisfjármálavefs Meniga var unnin í samstarfi við Skapalón.

Dómnefnd Íslensku vefverðlaunanna er skipuð fagfólki í vefmálum.

Sjá nánar á vef Samtaka vefiðnaðarins.

Permalink | Leave a comment  »

]]>
http://files.posterous.com/user_profile_pics/726296/meniga_facebook.jpg http://posterous.com/users/4xgd9DtqRod3 Meniga Meniga Meniga
Fri, 21 Jan 2011 10:45:33 -0800 Strákarnir okkar draga vagninn http://blog.meniga.is/strakarnir-okkar-draga-vagninn http://blog.meniga.is/strakarnir-okkar-draga-vagninn

Strákunum okkar í handboltalandsliðinu hefur fram til þessa gengið allt í haginn á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð.

Á sama tíma hafa eldsneytissjálfsafgreiðslustöðvarnar (þetta er ansi langt orð!) verið duglegar að tengja eldsneytisverð sitt við þann markatölumun sem landsliðið okkar vinnur leiki sína með. Þannig hefur hvert mark sem landsliðið skorar umfram andstæðingana skilað sér í krónu afslætti á lítrann.

Já, ef bíleigendur hafa einhvern tímann haft ástæðu til að styðja landsliðið, rífa sig upp úr sófanum og fagna í hvert sinn sem klístraða tuðran þenur netmöskva andstæðinganna er það vitanlega núna!

En hvað hefur þetta með Meniga að gera gætu sumir spurt?

Jú mikið því Meniga samfélagið endurspeglar neysluvenjur 6% heimila í landinu og því þótti okkur athyglisvert að skoða hvernig neyslumynstrið hefur verið á eldsneytismarkaðnum í þessari gósentíð.

Það gerðum við með því að skoða hlutfall milli viðskipta á sjálfsafgreiðslustöðvunum þremur (Atlantsolíu, Orkunni og ÓB) annars vegar og afgreiðslustöðvum sem bjóða upp á fulla þjónustu hins vegar. Við tókum þannig saman allar færslur (ópersónugreinanlegar að sjálfsögðu og í fullu samræmi við öryggis- og persónuverndarstefnu Meniga) sem flokkaðar hafa verið sem eldsneyti þriðjudaginn 18. janúar s.l. á verðbilinu 4.000 - 16.000 kr. Verðbilið völdum við til að önnur innkaup en eldsneyti á afgreiðslustöðvum með fulla þjónustu lituðu síður niðurstöðurnar.

Niðurstöðurnar koma í sjálfu sér ekki á óvart en bera neytendum fagurt merki því hlutdeild  sjálfsafgreiðslustöðvanna í kaupum á eldsneyti jókst um 17 prósentustig þriðjudaginn 18. janúar þegar 14 kr. afsláttur var veittur á lítrann. Samkvæmt okkar tölum eru sjálfsafgreiðslustöðvarnar með 61% markaðshlutdeild á þriðjudögum í eldsneyti að jafnaði en þennan dag er hlutdeildin 78% sem er umtalsverð aukning. Þetta fundu sjálfsagt margir á eigin skinni þegar beðið var eftir því að komast að á stöðvunum sjálfum. Það má glöggva sig enn betur á þessari breytingu á meðfylgjandi mynd.

Unknownname

Við getum því sagt að neytendur séu almennt reiðubúnir að stökkva til þegar góður afsláttur af eldsneyti er annars vegar. Áfram neytendur!

Aðeins að blessaðri verðtryggingunni.

Fram hefur komið í fjölmiðlum að verðlækkun um 14 krónur þriðjudaginn 18. janúar skilaði sér í 9% verðlækkun með fullum afslætti af listaverði.

Segjum sem svo að að verðlagseftirlitsmenn Hagstofunnar hafi verið á ferðinni þann dag til að mæla verð. Ef við gefum okkur síðan að mælingin hafi í raun sýnt 9% verðlækkun frá miðjum desember s.l. myndi það þýða 0,5% lækkun á vísitölunni (til verðtryggingar) í janúar, að öllu öðru óbreyttu, því eldsneyti er 5,68% af vísitölunni.

Ef þetta gengi eftir myndi til dæmis höfuðstóll 20 millljón króna verðtryggðs húsnæðisláns lækka um 100 þúsund krónur sem væru jákvæði tíðindi í skammdeginu. Þessi lækkun myndi að öllu jöfnu ganga til baka í næsta mánuði en þetta myndi þó þýða lægri vaxtagreiðslur þennan mánuðinn (416 kr. ef um 5% ársvexti er að ræða og mánaðarlegar greiðslur af höfuðstól).

Strákarnar okkar eru því ekki einungis að rétta bak hnýpinnar þjóðar og blása lífi í veiklað þjóðarstolt heldur geta þeir hugsanlega haft bein áhrif á fjárhagslega stöðu þjóðarinnar.

Er því einhver furða að Gummi landsliðsþjálfari sé alltaf að tönglast á markatölunni?

Áfram Ísland, Helgi Ben-sín

Permalink | Leave a comment  »

]]>
Fri, 21 Jan 2011 03:52:00 -0800 Nýir leitarmöguleikar í Meniga http://blog.meniga.is/nyir-leitarmoguleikar-i-meniga http://blog.meniga.is/nyir-leitarmoguleikar-i-meniga

Glöggir notendur hafa kannski tekið eftir því að nú er búið að breyta og bæta færsluleitina í Meniga.

Frjálsa textaleitin efst í færslulistanum er enn á sínum stað.
Search
Þar getum við leitað eftir heilum orðum eða jafnvel hluta úr orðum. Textabrotið "trygg" myndi tildæmis skila öllum færslum frá Tryggingastofnun, Sjúkratryggingum Íslands, Vátryggingum og svo framvegis en einnig öllum millifærslum til Tryggva og svo má lengi telja.

Ef við hökum við "Aðeins merktar  " þá fáum við upp allar færslur sem hafa verið flaggaðar en flaggaðar færslur eru þær færslur sem við eða kerfið höfum ákveðið að við þurfum að kíkja nánar á. Þegar hakað er við "Aðeins merktar  " þá er hægt að leita innan þeirra með frjálsu textaleitinni.

Ef við smellum á "Ítarleg leit" fáum við upp þessa valmynd 
Itarlegleit
Hér getum við þrengt þær leitarniðurstöður sem við erum með niður á ákveðið tímabil eða ákveðna upphæð eða bæði eftir því sem við á.

Ennfremur getum við þrengt leitina niður á ákveðna flokka með því að nota flokkalistann sem við finnum vinstra megin við færslulistann og lítur svona út
Flokkalisti
Þegar við hökum við tiltekinn flokk eða undirflokk þá birtast bara færslur úr þeim flokkum í færslulistanum.

Leit í flokkum er nú einfaldari og þægilegri í notkun en hún var áður og við vonum að hún komi notendum okkar að góðum notum.

 

Permalink | Leave a comment  »

]]>
http://files.posterous.com/user_profile_pics/726296/meniga_facebook.jpg http://posterous.com/users/4xgd9DtqRod3 Meniga Meniga Meniga
Wed, 19 Jan 2011 08:22:00 -0800 Nýjar tilkynningar með tölvupósti http://blog.meniga.is/nyjar-tilkynningar-med-tolvuposti http://blog.meniga.is/nyjar-tilkynningar-med-tolvuposti

Hafið þið prófað að skoða nýju "tilkynninga" möguleikana í Meniga? 

Það er ekki langt síðan að við bættum við nýjum möguleikum á tilkynningum frá Meniga, nú er m.a. hægt að fá tilkynningu um óvenjulegar færslur og þegar við förum yfir áætlun í ákveðnum flokki.

Til að skoða hvaða tilkynningar Meniga býður upp á þarf að fara í Stillingar - Tilkynningar

Tilkynningar

Þá opnast þessi gluggi þar sem við getum stillt hvaða tilkynningar við viljum fá sendar:

Tilkynningarstillingar

Flestar stillingarnar útskýra sig sjálfar en förum stuttlega yfir nýju atriðin.
  • "Auka netfang" - þar getum við sett inn netfang hjá t.d. maka svo hann fái líka tilkynningar frá Meniga.
  • Útgjöld - nú getum við fengið tilkynningu um öll útgjöld yfir ákveðinni upphæð
  • Innborganir - eins og með útgjöldin þá getum við fengið tilkynningu um allar innborganir yfir ákveðinni upphæð
  • Bankakostnaður og þjónustugjöld - við getum fengið tilkynningar um kostnað og þjónustugjöld frá bankanum.
  • Óvenjuleg útgjöld - Meniga getur sent okkur tilkynningar sem teljast óvenjulegar miðað við þau útgjöld sem við höfum átt í fortíðinni.
  • Yfir áætlun - ef við förum yfir áætlun í einhverjum flokknum getur Meniga látið okkur vita eða...
  • Ef útgjöld í tilteknum flokki ná ákveðinni % af heildaráætlun getur Meniga einnig látið okkur vita.
Það er gott ráð að nota sjálfvirku tilkynningarnar til að koma böndum á þá útgjaldaflokka sem við höfum átt í vandræðum með. Ef við notum sjálfvirku tilkynningarnar þá höfum við enga afsökun fyrir að fara fram úr áætlun.

Permalink | Leave a comment  »

]]>
http://files.posterous.com/user_profile_pics/726296/meniga_facebook.jpg http://posterous.com/users/4xgd9DtqRod3 Meniga Meniga Meniga
Fri, 14 Jan 2011 02:46:01 -0800 Nýjungar í Meniga http://blog.meniga.is/39743170 http://blog.meniga.is/39743170

 

 

FRÉTTABRÉF MENIGA FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2011

Undanfarið höfum við unnið hörðum höndum að ýmsum endurbótum sem einfalda og flýta fyrir notkun á Meniga. Einnig hafa ýmsar frábærar nýjungar, eins og sjá má að neðan, litið dagsins ljós. 

Við tökum öllum ábendingum fagnandi og hvetjum ykkur að láta í ykkur heyra.

Meniga í farsímann

Nú getur þú fylgst með stöðu mála, skráð nýjar peningafærslur og fengið útgjaldayfirlit á ferðinni.

Notendur með iPhone eða Android geta sótt Meniga forritið (app) og sett upp á símanum sínum. Von er á forriti fyrir aðra snjallsíma eins og Nokia og Blackberry á næstu dögum. Einnig er hægt að nálgast farsímaútgáfu af Meniga.is á slóðinni m.meniga.is.

Til að sækja Meniga app-ið er einfaldast að opna vafrann í símanum sínum og fara inn á slóðina m.meniga.is. Síðan skynjar hvaða útgáfu af síma þú ert með og bíður þér að hlaða niður app fyrir símann þinn. Einnig getur þú farið á Apple App-Store og leitað að Meniga eða farið á Android Market á símanum þínum og gert það sama. 

Einfaldara bókhald

Bókhaldið hefur verið einfaldað að því leyti að núna birtum við ekki tóma flokka sem hvorki innihalda færslur né áætlun. Þú getur hinsvegar valið að birta alla flokka ef þú vilt stilla áætlun í flokkum sem eru faldir. 
Horfa á myndskeið

Aðgangur fyrir maka

Fyrir pör með sameiginlegan fjárhag í Meniga getur einnig verið hentugt að vera með aðskilinn aðgang. Gögnin ykkar eru sameiginleg en notendur geta verið með mismunandi stillingar í “Augun á útgjöldunum” og tilkynningum. 
Horfa á myndskeið

Reglur

Reglur sem framkvæma sjálfvirkar aðgerðir er viðbót sem margir hafa beðið um. Regla getur t.d. fært launagreiðslu fram yfir mánaðarmót og flokkað lægri upphæðir á bensínstöðvum sem sjoppu eða skyndibita.                         
Horfa á myndskeið

Faldir flokkar birtast

Flokkar sem Meniga faldi í byrjun birtast nú sjálfkrafa þegar við á en þeir hafa farið framhjá sumum notendum. Þú getur hinsvegar áfram falið þá flokka sem þú vilt ekki hafa sýnilega í kerfinu.

Permalink | Leave a comment  »

]]>
http://files.posterous.com/user_profile_pics/726296/meniga_facebook.jpg http://posterous.com/users/4xgd9DtqRod3 Meniga Meniga Meniga
Thu, 16 Dec 2010 09:06:00 -0800 Notendaprófun á Meniga http://blog.meniga.is/notendaprofun-a-meniga-0 http://blog.meniga.is/notendaprofun-a-meniga-0
Notendaprófun á útgáfu 1.2
Við hjá Meniga trúum því að notandinn viti best og því viljum við bjóða ykkur að koma og notendaprófa fyrir okkur nýja útgáfu af Meniga, útgáfu 1.2. Breytingarnar fela aðallega í sér einföldun á viðmóti en ekki er um stórkostlegar útlitsbreytingar að ræða. Áður en við gefum út þessa útgáfu viljum við prófa hana vel og eru notendaprófanir einn liður í því. 

Ef þú hefur áhuga máttu gjarnan senda tölvupóst á Friðgeir Torfa.

Image
Framkvæmd prófanna
Prófanirnar fara fram í húsnæði Meniga að Ofanleiti 2 og þær fara fram mánudaginn 20. desember. Sjálf prófunin tekur um klukkustund og fer þannig fram að prófari og umsjónarmaður sitja við tölvu og prófari reynir að leysa þau verkefni sem umsjónarmaður setur fyrir í Meniga. Sem þakklætisvott fær hver prófari gjafabréf út að borða fyrir 2.

Permalink | Leave a comment  »

]]>
http://files.posterous.com/user_profile_pics/726296/meniga_facebook.jpg http://posterous.com/users/4xgd9DtqRod3 Meniga Meniga Meniga
Mon, 08 Nov 2010 09:07:00 -0800 Notendaprófun á @Meniga http://blog.meniga.is/notendaprofun-a-meniga http://blog.meniga.is/notendaprofun-a-meniga

Við hjá Meniga erum að leita að núverandi viðskiptavinum Íslandsbanka sem hefðu áhuga á því að prófa Meniga í notendaprófunum okkar. Það sem okkur vantar er fólk sem er til í að mæta hingað í Meniga og tengja Heimabankann sinn við Meniga og leyfa okkur að fylgjast með hvernig því gengur. Við notum síðan upplýsingarnar sem við fáum til að bæta kerfið. Þeir sem prófa kerfið eru leystir út með mat fyrir 2 á Hamborgarafabrikkunni.

Prófanirnar fara fram fimmtudaginn 11/11.

Áhugasamir sendi tölvupóst á meniga@meniga.is

Permalink | Leave a comment  »

]]>
http://files.posterous.com/user_profile_pics/726296/meniga_facebook.jpg http://posterous.com/users/4xgd9DtqRod3 Meniga Meniga Meniga
Thu, 28 Oct 2010 09:39:19 -0700 Notendaprófanir og aftur notendaprófanir til að komast að kjarna málsins #usability http://blog.meniga.is/notendaprofanir-og-aftur-notendaprofanir-til-0 http://blog.meniga.is/notendaprofanir-og-aftur-notendaprofanir-til-0 Við hjá Meniga erum reglulega með notendaprófanir á kerfinu okkar og mælum með slíku við hvern sem er. Notendaprófanir eru frábær leið til þess að upplifa og sjá hvernig notendur nota hugbúnað og besta leiðin til að komast að því hvar notendur lenda í vandræðum með kerfið. 
Það er bara ekki til betri leið til þess að finna hnökra í kerfum en að fylgjast með notendum nota kerfið og tala upphátt á meðan. Allar mælingar úr Google Analytics og Yahoo Web Analytics og öðru slíku komast ekki í hálfkvisti við að heyra notendur segja "ég skil þetta ekki alveg" og "hvað á ég að gera hérna" þegar þeir eru að vinna með hluti sem við héldum að væri alveg augljósir.

Í næstu viku erum við með mánaðarlegu notendaprófunina okkar og við eigum pottþétt eftir að fá mikið af áhugaverðum upplýsingum úr henni, og maður er alltaf jafn hissa á hvað fólk lendir í vandræðum með.

Þau sem hafa áhuga á að hjálpa okkur að bæta kerfið ættu endilega að skrá sig hér: http://www.meniga.is/Home/About/55/notendaprofanir-meniga

og þeir sem hafa áhuga á að bæta eigin kerfi með notendaprófunum ættu að hafa í huga að notendaprófanir þurfa ekki að vera ofurnákvæmar og taka á öllum þáttum kerfisins, þurfa ekki að vera gerðar af sérfræðingum í notendaprófunum og þurfa ekki að vera rándýrar. Heimagerðar "quick and easy" notendaprófanir skila hér um bil sömu niðurstöðum og kosta brot af því sem umsvifamiklar prófanir kosta. En áður en þið ráðist í heimagerðar notendaprófanir ættuð þið að lesa þessa bók:
http://www.sensible.com/rocketsurgery/index.html

Permalink | Leave a comment  »

]]>
http://files.posterous.com/user_profile_pics/726296/meniga_facebook.jpg http://posterous.com/users/4xgd9DtqRod3 Meniga Meniga Meniga
Mon, 25 Oct 2010 08:24:30 -0700 Gleðilegan kvennafrídag! http://blog.meniga.is/gledilegan-kvennafridag http://blog.meniga.is/gledilegan-kvennafridag Þá er Meniga orðið kvennalaust eftir að kvenfólkið gekk út til að fagna kvennafrídeginum. Meniga óskar öllum konum (og körlum) til hamingju með kvennafrídaginn.

Permalink | Leave a comment  »

]]>
http://files.posterous.com/user_profile_pics/726296/meniga_facebook.jpg http://posterous.com/users/4xgd9DtqRod3 Meniga Meniga Meniga
Wed, 01 Sep 2010 09:56:27 -0700 #Væntanlegt frá Meniga http://blog.meniga.is/vaentanlegt-fra-meniga http://blog.meniga.is/vaentanlegt-fra-meniga Notendur hafa bent okkur á að gott væri að geta skipt upp reikningum sem ná yfir marga liði. Dæmi um slíkt eru símreikningar sem oft innihalda ekki bara kostnað við símnotkun heldur einnig internet og farsíma. Þessi nýjung verður innleidd bráðlega. Fylgist með til að fá frekari fréttir af nýjungum.

Permalink | Leave a comment  »

]]>
http://files.posterous.com/user_profile_pics/726296/meniga_facebook.jpg http://posterous.com/users/4xgd9DtqRod3 Meniga Meniga Meniga