Strákarnir okkar draga vagninn
Strákunum okkar í handboltalandsliðinu hefur fram til þessa gengið allt í haginn á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð.
Á sama tíma hafa eldsneytissjálfsafgreiðslustöðvarnar (þetta er ansi langt orð!) verið duglegar að tengja eldsneytisverð sitt við þann markatölumun sem landsliðið okkar vinnur leiki sína með. Þannig hefur hvert mark sem landsliðið skorar umfram andstæðingana skilað sér í krónu afslætti á lítrann.
Já, ef bíleigendur hafa einhvern tímann haft ástæðu til að styðja landsliðið, rífa sig upp úr sófanum og fagna í hvert sinn sem klístraða tuðran þenur netmöskva andstæðinganna er það vitanlega núna!
En hvað hefur þetta með Meniga að gera gætu sumir spurt?
Jú mikið því Meniga samfélagið endurspeglar neysluvenjur 6% heimila í landinu og því þótti okkur athyglisvert að skoða hvernig neyslumynstrið hefur verið á eldsneytismarkaðnum í þessari gósentíð.
Það gerðum við með því að skoða hlutfall milli viðskipta á sjálfsafgreiðslustöðvunum þremur (Atlantsolíu, Orkunni og ÓB) annars vegar og afgreiðslustöðvum sem bjóða upp á fulla þjónustu hins vegar. Við tókum þannig saman allar færslur (ópersónugreinanlegar að sjálfsögðu og í fullu samræmi við öryggis- og persónuverndarstefnu Meniga) sem flokkaðar hafa verið sem eldsneyti þriðjudaginn 18. janúar s.l. á verðbilinu 4.000 - 16.000 kr. Verðbilið völdum við til að önnur innkaup en eldsneyti á afgreiðslustöðvum með fulla þjónustu lituðu síður niðurstöðurnar.
Niðurstöðurnar koma í sjálfu sér ekki á óvart en bera neytendum fagurt merki því hlutdeild sjálfsafgreiðslustöðvanna í kaupum á eldsneyti jókst um 17 prósentustig þriðjudaginn 18. janúar þegar 14 kr. afsláttur var veittur á lítrann. Samkvæmt okkar tölum eru sjálfsafgreiðslustöðvarnar með 61% markaðshlutdeild á þriðjudögum í eldsneyti að jafnaði en þennan dag er hlutdeildin 78% sem er umtalsverð aukning. Þetta fundu sjálfsagt margir á eigin skinni þegar beðið var eftir því að komast að á stöðvunum sjálfum. Það má glöggva sig enn betur á þessari breytingu á meðfylgjandi mynd.
Við getum því sagt að neytendur séu almennt reiðubúnir að stökkva til þegar góður afsláttur af eldsneyti er annars vegar. Áfram neytendur!
Aðeins að blessaðri verðtryggingunni.
Fram hefur komið í fjölmiðlum að verðlækkun um 14 krónur þriðjudaginn 18. janúar skilaði sér í 9% verðlækkun með fullum afslætti af listaverði.
Segjum sem svo að að verðlagseftirlitsmenn Hagstofunnar hafi verið á ferðinni þann dag til að mæla verð. Ef við gefum okkur síðan að mælingin hafi í raun sýnt 9% verðlækkun frá miðjum desember s.l. myndi það þýða 0,5% lækkun á vísitölunni (til verðtryggingar) í janúar, að öllu öðru óbreyttu, því eldsneyti er 5,68% af vísitölunni.
Ef þetta gengi eftir myndi til dæmis höfuðstóll 20 millljón króna verðtryggðs húsnæðisláns lækka um 100 þúsund krónur sem væru jákvæði tíðindi í skammdeginu. Þessi lækkun myndi að öllu jöfnu ganga til baka í næsta mánuði en þetta myndi þó þýða lægri vaxtagreiðslur þennan mánuðinn (416 kr. ef um 5% ársvexti er að ræða og mánaðarlegar greiðslur af höfuðstól).
Strákarnar okkar eru því ekki einungis að rétta bak hnýpinnar þjóðar og blása lífi í veiklað þjóðarstolt heldur geta þeir hugsanlega haft bein áhrif á fjárhagslega stöðu þjóðarinnar.
Er því einhver furða að Gummi landsliðsþjálfari sé alltaf að tönglast á markatölunni?
Áfram Ísland, Helgi Ben-sín

