Íslenska

Bloggið

Ársskýrsla

3 Apr 2011

Nú er hægt að sjá hvernig árið í heild sinni leit út en þar tökum við saman tekjur og útgjöld yfir árið og birtum í einu heilstæðu yfirliti. Til að skoða ársskýrsluna ferð þú í skýrslur og velur ársskýrslu.

Flokkað sem: Nýjungar í Meniga

Spurningaleikur um þín fjármál

3 Apr 2011

Mánaðarlega munum við bjóða þér að taka þátt í nýjum spurningaleik eða fjármálaprófi þar sem þú svarar 5 léttum spurningum um fjármál þín. Fyrstu spurningaleikirnir snúast um bifreiðaútgjöld og útgjöld vegna skemmtana

Flokkað sem: Nýjungar í Meniga

Innsýn: Nýr og betri samanburður

3 Apr 2011

Samanburðurinn í Meniga hefur fengið gagngera yfirhalningu og hlotið nafnið Innsýn. Með þessum breytingum vonumst við til að þú getir öðlast enn betri innsýn í hvernig útgjöldum þínum er háttað í samanburði við samfélagið. 

Sérstaklega viljum við nefna innsýn í matarinnkaup þar sem þú getur greint hvar þú verslar oftast miðað við aðra og hvernig þú gætir mögulega hagað innkaupunum til að nýta peningana enn betur.

Flokkað sem: Nýjungar í Meniga

Nýir leitarmöguleikar í Meniga

21 Jan 2011

Glöggir notendur hafa kannski tekið eftir því að nú er búið að breyta og bæta færsluleitina í Meniga.

Frjálsa textaleitin efst í færslulistanum er enn á sínum stað.
Search
Þar getum við leitað eftir heilum orðum eða jafnvel hluta úr orðum. Textabrotið "trygg" myndi tildæmis skila öllum færslum frá Tryggingastofnun, Sjúkratryggingum Íslands, Vátryggingum og svo framvegis en einnig öllum millifærslum til Tryggva og svo má lengi telja.

Ef við hökum við "Aðeins merktar  " þá fáum við upp allar færslur sem hafa verið flaggaðar en flaggaðar færslur eru þær færslur sem við eða kerfið höfum ákveðið að við þurfum að kíkja nánar á. Þegar hakað er við "Aðeins merktar  " þá er hægt að leita innan þeirra með frjálsu textaleitinni.

Ef við smellum á "Ítarleg leit" fáum við upp þessa valmynd 
Itarlegleit
Hér getum við þrengt þær leitarniðurstöður sem við erum með niður á ákveðið tímabil eða ákveðna upphæð eða bæði eftir því sem við á.

Ennfremur getum við þrengt leitina niður á ákveðna flokka með því að nota flokkalistann sem við finnum vinstra megin við færslulistann og lítur svona út
Flokkalisti
Þegar við hökum við tiltekinn flokk eða undirflokk þá birtast bara færslur úr þeim flokkum í færslulistanum.

Leit í flokkum er nú einfaldari og þægilegri í notkun en hún var áður og við vonum að hún komi notendum okkar að góðum notum.

 

Flokkað sem: Nýjungar í Meniga

Nýjar tilkynningar með tölvupósti

19 Jan 2011

Hafið þið prófað að skoða nýju "tilkynninga" möguleikana í Meniga? 

Það er ekki langt síðan að við bættum við nýjum möguleikum á tilkynningum frá Meniga, nú er m.a. hægt að fá tilkynningu um óvenjulegar færslur og þegar við förum yfir áætlun í ákveðnum flokki.

Til að skoða hvaða tilkynningar Meniga býður upp á þarf að fara í Stillingar - Tilkynningar

Tilkynningar

Þá opnast þessi gluggi þar sem við getum stillt hvaða tilkynningar við viljum fá sendar:

Tilkynningarstillingar

Flestar stillingarnar útskýra sig sjálfar en förum stuttlega yfir nýju atriðin.
  • "Auka netfang" - þar getum við sett inn netfang hjá t.d. maka svo hann fái líka tilkynningar frá Meniga.
  • Útgjöld - nú getum við fengið tilkynningu um öll útgjöld yfir ákveðinni upphæð
  • Innborganir - eins og með útgjöldin þá getum við fengið tilkynningu um allar innborganir yfir ákveðinni upphæð
  • Bankakostnaður og þjónustugjöld - við getum fengið tilkynningar um kostnað og þjónustugjöld frá bankanum.
  • Óvenjuleg útgjöld - Meniga getur sent okkur tilkynningar sem teljast óvenjulegar miðað við þau útgjöld sem við höfum átt í fortíðinni.
  • Yfir áætlun - ef við förum yfir áætlun í einhverjum flokknum getur Meniga látið okkur vita eða...
  • Ef útgjöld í tilteknum flokki ná ákveðinni % af heildaráætlun getur Meniga einnig látið okkur vita.
Það er gott ráð að nota sjálfvirku tilkynningarnar til að koma böndum á þá útgjaldaflokka sem við höfum átt í vandræðum með. Ef við notum sjálfvirku tilkynningarnar þá höfum við enga afsökun fyrir að fara fram úr áætlun.
Flokkað sem: Nýjungar í Meniga

Nýjungar í Meniga

14 Jan 2011

 

 

FRÉTTABRÉF MENIGA FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2011

Undanfarið höfum við unnið hörðum höndum að ýmsum endurbótum sem einfalda og flýta fyrir notkun á Meniga. Einnig hafa ýmsar frábærar nýjungar, eins og sjá má að neðan, litið dagsins ljós. 

Við tökum öllum ábendingum fagnandi og hvetjum ykkur að láta í ykkur heyra.

Meniga í farsímann

Nú getur þú fylgst með stöðu mála, skráð nýjar peningafærslur og fengið útgjaldayfirlit á ferðinni.

Notendur með iPhone eða Android geta sótt Meniga forritið (app) og sett upp á símanum sínum. Von er á forriti fyrir aðra snjallsíma eins og Nokia og Blackberry á næstu dögum. Einnig er hægt að nálgast farsímaútgáfu af Meniga.is á slóðinni m.meniga.is.

Til að sækja Meniga app-ið er einfaldast að opna vafrann í símanum sínum og fara inn á slóðina m.meniga.is. Síðan skynjar hvaða útgáfu af síma þú ert með og bíður þér að hlaða niður app fyrir símann þinn. Einnig getur þú farið á Apple App-Store og leitað að Meniga eða farið á Android Market á símanum þínum og gert það sama. 

Einfaldara bókhald

Bókhaldið hefur verið einfaldað að því leyti að núna birtum við ekki tóma flokka sem hvorki innihalda færslur né áætlun. Þú getur hinsvegar valið að birta alla flokka ef þú vilt stilla áætlun í flokkum sem eru faldir. 
Horfa á myndskeið

Aðgangur fyrir maka

Fyrir pör með sameiginlegan fjárhag í Meniga getur einnig verið hentugt að vera með aðskilinn aðgang. Gögnin ykkar eru sameiginleg en notendur geta verið með mismunandi stillingar í “Augun á útgjöldunum” og tilkynningum. 
Horfa á myndskeið

Reglur

Reglur sem framkvæma sjálfvirkar aðgerðir er viðbót sem margir hafa beðið um. Regla getur t.d. fært launagreiðslu fram yfir mánaðarmót og flokkað lægri upphæðir á bensínstöðvum sem sjoppu eða skyndibita.                         
Horfa á myndskeið

Faldir flokkar birtast

Flokkar sem Meniga faldi í byrjun birtast nú sjálfkrafa þegar við á en þeir hafa farið framhjá sumum notendum. Þú getur hinsvegar áfram falið þá flokka sem þú vilt ekki hafa sýnilega í kerfinu.

Flokkað sem: Nýjungar í Meniga

#Væntanlegt frá Meniga

1 Sep 2010

Notendur hafa bent okkur á að gott væri að geta skipt upp reikningum sem ná yfir marga liði. Dæmi um slíkt eru símreikningar sem oft innihalda ekki bara kostnað við símnotkun heldur einnig internet og farsíma. Þessi nýjung verður innleidd bráðlega. Fylgist með til að fá frekari fréttir af nýjungum.
Flokkað sem: Nýjungar í Meniga