Íslenska

Bloggið

Notendaprófun á Meniga

16 Dec 2010

Notendaprófun á útgáfu 1.2
Við hjá Meniga trúum því að notandinn viti best og því viljum við bjóða ykkur að koma og notendaprófa fyrir okkur nýja útgáfu af Meniga, útgáfu 1.2. Breytingarnar fela aðallega í sér einföldun á viðmóti en ekki er um stórkostlegar útlitsbreytingar að ræða. Áður en við gefum út þessa útgáfu viljum við prófa hana vel og eru notendaprófanir einn liður í því. 

Ef þú hefur áhuga máttu gjarnan senda tölvupóst á Friðgeir Torfa.

Image
Framkvæmd prófanna
Prófanirnar fara fram í húsnæði Meniga að Ofanleiti 2 og þær fara fram mánudaginn 20. desember. Sjálf prófunin tekur um klukkustund og fer þannig fram að prófari og umsjónarmaður sitja við tölvu og prófari reynir að leysa þau verkefni sem umsjónarmaður setur fyrir í Meniga. Sem þakklætisvott fær hver prófari gjafabréf út að borða fyrir 2.
Flokkað sem: Prófanir

Notendaprófun á @Meniga

8 Nov 2010

Við hjá Meniga erum að leita að núverandi viðskiptavinum Íslandsbanka sem hefðu áhuga á því að prófa Meniga í notendaprófunum okkar. Það sem okkur vantar er fólk sem er til í að mæta hingað í Meniga og tengja Heimabankann sinn við Meniga og leyfa okkur að fylgjast með hvernig því gengur. Við notum síðan upplýsingarnar sem við fáum til að bæta kerfið. Þeir sem prófa kerfið eru leystir út með mat fyrir 2 á Hamborgarafabrikkunni.

Prófanirnar fara fram fimmtudaginn 11/11.

Áhugasamir sendi tölvupóst á meniga@meniga.is

Flokkað sem: Prófanir

Notendaprófanir og aftur notendaprófanir til að komast að kjarna málsins #usability

28 Oct 2010

Við hjá Meniga erum reglulega með notendaprófanir á kerfinu okkar og mælum með slíku við hvern sem er. Notendaprófanir eru frábær leið til þess að upplifa og sjá hvernig notendur nota hugbúnað og besta leiðin til að komast að því hvar notendur lenda í vandræðum með kerfið. 
Það er bara ekki til betri leið til þess að finna hnökra í kerfum en að fylgjast með notendum nota kerfið og tala upphátt á meðan. Allar mælingar úr Google Analytics og Yahoo Web Analytics og öðru slíku komast ekki í hálfkvisti við að heyra notendur segja "ég skil þetta ekki alveg" og "hvað á ég að gera hérna" þegar þeir eru að vinna með hluti sem við héldum að væri alveg augljósir.

Í næstu viku erum við með mánaðarlegu notendaprófunina okkar og við eigum pottþétt eftir að fá mikið af áhugaverðum upplýsingum úr henni, og maður er alltaf jafn hissa á hvað fólk lendir í vandræðum með.

Þau sem hafa áhuga á að hjálpa okkur að bæta kerfið ættu endilega að skrá sig hér: http://www.meniga.is/Home/About/55/notendaprofanir-meniga

og þeir sem hafa áhuga á að bæta eigin kerfi með notendaprófunum ættu að hafa í huga að notendaprófanir þurfa ekki að vera ofurnákvæmar og taka á öllum þáttum kerfisins, þurfa ekki að vera gerðar af sérfræðingum í notendaprófunum og þurfa ekki að vera rándýrar. Heimagerðar "quick and easy" notendaprófanir skila hér um bil sömu niðurstöðum og kosta brot af því sem umsvifamiklar prófanir kosta. En áður en þið ráðist í heimagerðar notendaprófanir ættuð þið að lesa þessa bók:
http://www.sensible.com/rocketsurgery/index.html
Flokkað sem: Prófanir